Dr. Erla Björk Örnólfsdóttir hefur verið ráðin í stöðu forstöðumanns við fyrirhugað rannsóknarsetur við Breiðafjörð og tekur hún til starfa í júlí næstkomandi.

Hlutverk rannsóknarsetursins er að efla rannsóknir á lífríki sjávar í víðasta skilningi, með megináherslur á vistkerfið í Breiðafirði, til þess að auka þekkingu á vistkerfinu í þeim tilgangi að auka nýtingu auðlindarinnar og arðsemi.

 

Erla Björk lauk mastersprófi í líffræði frá Háskóla Íslands árið 1994 og doktorsprófi í sjárvarlíffræði frá Texas A&M University árið 2002.Undanfarin misseri hefur Erla Björk starfað í Bandaríkjunum við rannsóknir á samfélögum svifþörunga og veira er þá síkja. Um tíma starfaði Erla sem sérfræðingur á Veiðimálastofnun, Reykjavíkurdeild.

 

Erla Björk og Kristinn Jónasson, f.h. undirbúningshóp.

 

Gengið var frá ráðningu Erlu á fundi með undirbúningsnefnd þann 2.mars og eru myndin frá því tilefni. Fyrir hönd undirbúningshópsins skrifaði Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbæjar.

 

Stefnt er að formlegri stofnun rannsóknarsetursins í apríl næstkomandi. Að rannsóknarsetrinu standa hagsmunaðilar í sjávarútvegi við Breiðafjörð og víðar.

 

Nánari upplýsingar gefur Kristín Björg í síma 436 6910.