Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga auglýsir laust til umsóknar  starf  forstöðumanns  Ásbyrgis,  hæfingar - og vinnustöðvar fólks með skerta starfsgetu.

 

  • Leitað er einstaklings með háskólamenntun og eða aðra þá  menntun er nýtist í auglýstu starfi
  • Viðkomandi hafi  til að bera  hæfileika til forystu, samvinnu og góðra samskipta og áhuga fyrir starfi með fólki með skerta starfsgetu.
  • Góð íslenskukunnátta, stundvísi,  vilji og metnaður  til að leiða markvert starf í góðri sátt og samleið aðila, - eru  mikilvæg viðmið starfsins.

 

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Skriflegar umsóknir um starfið  er tilgreini menntun, starfsferil og umsagnaraðila ásamt prófskírteini og sakavottorði berist undirrituðum sem jafnframt veitir frekari upplýsingar.

Umsóknarfrestur er til   20. september 2022

 

Sveinn Þór Elinbergsson, forstöðumaður Klettsbúð 4,   360  Snæfellsbær; sveinn@fssf.is

www.fssf.is