Forvarnardagurinn verður haldinn í þriðja sinn næstkomandi, fimmtudag, 6. nóvember, um land allt. Forvarnardagurinn er haldinn að frumkvæði forseta Íslands í samstarfi við  Samband íslenskra sveitarfélaga, Íþrótta- og ólympíusamband Íslands, Bandalag íslenskra skáta, Ungmennafélag Íslands, ÍSÍ, auk Reykjavíkurborgar, Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík. Actavis er aðalstyrktaraðili dagsins.

Að venju er dagskráin miðuð við nemendur í 9. bekkjum grunnskóla landsins sem tekið hafa öflugan og virkan þátt í verkefnum dagsins. Á heimasíðu verkefnisins http://www.forvarnardagur.is/ má m.a. finna skýrslu með samanteknum niðurstöðum Forvarnardagsins 2007, ávarp forseta Íslands auk kynningarmyndbands dagsins, upplýsingum um ratleik og fleira áhugavert.