VÍS, Vinnuverndarskóli Íslands og Grundarfjarðabær hafa gert með sér samkomulag um framleiðslu á námsefni fyrir ungmenni í vinnuskóla sveitarfélagsins.

Námsefnið er liður í að byggja upp öflugt forvarnastarf fyrir ungmenni þar sem kastljósinu er beint að vinnuvernd. Námsefnið er hugsað fyrir börn og ungmenni í vinnuskólum og sumarstörfum hjá sveitarfélögum, auk þess sem sérstakt námsefni verður útbúið fyrir flokksstjóra og umsjónarfólk.

Grundarfjarðarbær er prufusveitarfélag við þróun á námsefninu og hefur vinna við gerð námsefnisins verið í gangi frá því um áramótin síðustu. Stefnt er að því að ungmenni sveitarfélagsins taki þátt í prufukeyrslu námskeiðs fyrir vorið og að fyrstu námskeiðin verði haldin í maí-júní þegar unga fólkið kemur til sumarstarfa og í vinnuskólann.  

Í kjölfarið mun öðrum sveitarfélögum standa til boða að nýta sér fræðsluefni og þjónustu Vinnuverndarskóla Íslands.

Kennslan fer fram í vendinámi líkt og í öðrum námskeiðum Vinnuverndarskóla Íslands, sem þýðir að námsefnið er rafrænt og verkefnavinna gagnvirk. Þátttakendur munu því leysa ýmsar þrautir og spurningar, sem verða hluti af yfirferð námsins. Hvert sveitarfélag getur þannig útfært efnið sem hluta af sínu starfi og fræðslu fyrir börn og ungmenni.

 

Frétt á vef VÍS