Kæru bæjarbúar

Ég minni á Facebooksíðu bókasafnsins þar sem ég safna saman því sem ég finn af sögum á vefnum, fróðleik og tómstundaefni fyrir bæði eldri og yngri. Ég þigg allar góðar ábendingar sem ekki eru auglýsingar. Bókasafnið í Sögumiðstöðinni er enn opið og nokkrir sem hafa komið á safnið.

Þeim sem vilja fá bækur heim er bent á að hafa samband við bókasafnið með tölvupósti í bokasafn@grundarfjordur.is eða í skilaboðum á Facebook.

Upplýsingamiðstöðin í Sögumiðstöðinni er enn opin en ósköp fáir koma. Þeir örfáu sem eru á ferðinni og þurfa bara klósett fara í Samkomuhúsið með glöðu geði.

Rútufyrirtækjum hefur verið bent á að forðast að koma með hópa á snyrtingarnar í Sögumiðstöðinni.

Farið vel með ykkur.
Sunna