Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninganna sem fram fara laugardaginn 29. maí n.k. rennur út kl. 12 á hádegi laugardaginn 8. maí n.k. Skila má framboðslistum til formanns kjörstjórnar, Mjallar Guðjónsdóttur, sími 898 2702.

Kjörstjórn mun ennfremur taka á móti framboðslistum á skrifstofu Grundarfjarðarbæjar laugardaginn 8. maí n.k. milli kl. 11.00 og 12.00.

 Formaður kjörstjórnar

Mjöll Guðjónsdóttir