Frá kjörstjórn Grundarfjarðarbæjar 

 

Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninganna sem fram fara laugardaginn 14. maí nk. rennur út kl. 12 á hádegi föstudaginn 8. apríl nk. Skila má framboðslistum til formanns kjörstjórnar, Mjallar Guðjónsdóttur, sími 898 2702.

Kjörstjórn mun ennfremur taka á móti framboðslistum á skrifstofu Grundarfjarðarbæjar föstudaginn 8. apríl nk. milli kl. 11:00 og 12:00.

Formaður kjörstjórnar,

Mjöll Guðjónsdóttir