Fræðslufundur undir yfirskriftinni Foreldrar og forvarnir sem fyrirhugaður var í kvöld kl. 18:00 í Framhaldsskóla Snæfellinga frestast vegna veðurs. Nýr fundartími er fyrirhugaður í byrjun desember og verður hann auglýstur nánar á næstu dögum.

Heimili og skóli, SAFT og Vímulaus æska – Foreldrahús biðjast velvirðingar á að fresta þessu í annað sinn en við höfum fulla trú á að þetta gangi í gegn í þriðju atrennu.

Hlökkum til að koma og vera með ykkur, vonandi í desember.