Grundarfjarðarhöfn hefur hafið framkvæmdir við gerð nýrrar stálþilsbryggju sem mun leysa litlu bryggjuna af hólmi.  Nýja bryggjan verður mun stærri en sú eldri,  um 65  löng annars vegar og 85 m löng hins vegar og 20 m breið. Tæplega 50 metra löng jarðvegsfylling er út að nýju bryggjunni.  Verktakafyrirtækið Berglín, sem var lægst í útboði verksins fyrr í vor með tilboð uppá tæpar 84 milljónir kr., sér um framkvæmdina.

 

Til að minnka ónæði bæjarbúa vegna var lagður vegur í fjörunni milli hafnargarðs og Nesvegar og nota verktakar þá leið til að flytja efni til bryggjugerðarinnar úr námunni við iðnaðarsvæðið.  Þessum hluta verksins verður lokið 1. des. nk,  þekja á nýju bryggjuna verður steypt  á árinu 2007.