Samkvæmt upplýsingum frá Loftorku er nú verið að steypa einingar fyrir grunn nýja Fjölbrautaskólans. Þann 25. feb. verður byrjað að reisa einingarnar í grunninn á byggingarstað.

 

Hönnuðir eru að leggja lokahönd á teikningar og er gert ráð fyrir að hönnun arkitekta og verkfræðinga verði lokið 17. febrúar.

Fréttatilkynning frá Jeratúni ehf. 11. feb. 2004