Eins og áður hefur verið kynnt, þá hefur Grundarfjarðarbær verið að endurbæta gangstéttar og göturými víða í bænum, m.a. á Hrannarstíg. Nú fer að hefjast þriðji áfangi á Hrannarstíg, frá Fagurhól og niður að Sögumiðstöð eða við hús Hrannarstíg 8-14.

Í Aðalskipulagi Grundarfjarðarbæjar 2019-2039 er gert ráð fyrir að innleiddar verði blágrænar lausnir í þéttbýlinu, sem er bæði í senn fráveitulausn og upplyfting grænna svæða í bæjarumhverfinu. Framkvæmdin mun bæta til muna öryggi vegfarenda á Hrannarstíg, fegra umhverfið og létta á fráveitukerfinu undir götu. Götulýsing er einnig endurnýjuð.

Gangstéttar og stígar mynda mikilvægt „net“ gönguleiða um bæinn. Skoðað var hvar þurfi að bæta umferðartengingar, hvernig megi gera stéttar og stíga aðgengilega fyrir mismunandi ferðamáta og hvernig hönnun hjálpar til þegar kemur að vetrarþjónustu, t.d. snjómokstri.

Íbúar hafa kallað eftir auknu umferðaröryggi og það verður best gert með því að draga úr aksturshraða. Hönnun götunnar tekur mið af því. Það ætti að verða mun auðveldara og öruggara fyrir gangandi íbúa og gesti að fara leiðar sinnar um svæðið, t.d. fyrir börn að komast til og frá skólum sínum. Í aðalskipulaginu er einmitt gert ráð fyrir að Hrannarstígur verði gönguvænni gata.

Samhliða þessu hefur Grundarfjarðarbær látið skoða ofanvatnsmálin. Umhverfið okkar þarf að geta tekið við öllu því vatni sem himnarnir senda okkur, stundum í stórum skömmtum. Farin er sú leið að nýta „blágrænar ofanvatnslausnir“ í göturýmum, en segja má að það sé leið náttúrunnar til að taka við vatni. Í framtíðinni verða grænir gróðurreitir og gegndræp „regnbeð“ hluti af göturýmum, með það hlutverk að taka við vatni.

Á grassvæðum austan megin í götu verður í framtíðinni útbúin vegleg regnbeð sem eiga að minnka magn regnvatns sem fer ofaní fráveitukerfið sem er komið að þolmörkum.

Verktaki er Jk&Co, skv. samningi á grundvelli verðkönnunar um verkið.

Það er viðbúið að einhver óþægindi verði fyrir húseigendur meðan á framkvæmdum stendur, einkum við innkeyrslur. Við vonumst til að íbúar sýni þessu skilning þegar að því kemur, því markmiðið er betra og öruggara umhverfi.