Kjörskrá vegna sveitarstjórnarkosninganna sem fram fara 27. maí 2006 mun liggja frammi á bæjarskrifstofunni, almenningi til sýnis frá og með föstudeginum 12. maí 2006 til kjördags, á opnunartíma skrifstofunnar, mánudaga til fimmtudaga kl. 9.30-15.30 og föstudaga kl. 9.30-14.00. Ennfremur liggur ljósrit af kjörskrá frammi á bókasafninu á opnunartíma þess.

Athugasemdum við kjörskrá má koma á framfæri í samræmi við lög um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998. Sjá nánari auglýsingar á vef Grundarfjarðarbæjar www.grundarfjordur.is og á vef félagsmálaráðuneytis www.kosningar.is, en þar er m.a. að finna leiðbeiningar um kosningar og kosningarétt á tíu erlendum tungumálum.

 

Bæjarstjóri