Kjörskrá vegna sveitarstjórnarkosninga í Grundarfjarðarbæ 14. maí 2022 liggur frammi á bæjarskrifstofunni, almenningi til sýnis, frá og með föstudeginum 22. apríl 2022 til kjördags, á opnunartíma skrifstofunnar, alla virka daga frá 10:00-14:00.

Kjósendur eru hvattir til þess að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskrá. 

Kjörskráin miðast við skráningu lögheimilis í sveitarfélagi eins og það er samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár kl. 12 á hádegi 33 dögum fyrir kjördag. Viðmiðunardagur kjörskrár var því 6. apríl sl.

Hér geta kjósendur kannað hvort og hvar þeir eru á kjörskrá;
https://skra.is/folk/kjorskra-og-kosningar/hvar-a-eg-ad-kjosa/

Athugasemdum við kjörskrá skal beint til Þjóðskrár Íslands. Ef við á má gera leiðréttingar á kjörskrá fram á kjördag.

Kjósendum er einnig bent vefinn https://www.kosning.is þar sem er að finna ýmsar gagnlegar upplýsingar.