Minnt er á að skilafrestur á myndum í Ljósmyndasamkeppni Grundarfjarðar er til 10. nóvember. Hægt verður að skila inn myndum í keppnina til miðnættis fimmtudaginn 10. nóvember nk. og er þemað "líf og leikur". 

Til mikils er að vinna því eigandi bestu myndarinnar fær að launum kr 50.000, 30.000 kr eru fyrir annað sæti og 20.000 kr fyrir það þriðja.

Reglur keppninnar:

 

1.   Skil á myndum fara fram með því að senda myndirnar á

      netfangið sigridurh@grundarfjordur.is

2.   Skilafrestur á myndum er til miðnættis fimmtudaginn 10. nóvember 2016.

3.   Ekki má birta myndir sem skilað hefur verið inn, hvorki á netinu,

      sýningum né í fjölmiðlum fyrr en að lokinni verðlaunaafhendingu.

4.   Myndirnar verða að vera teknar innan sveitarfélagsmarka á tímabilinu

      janúar til nóvember 2016.

5.   Grundarfjarðarbær áskilur sér rétt til að nota myndirnar á vefsíðum sínum

      endurgjaldslaust.

6.   Grundarfjarðarbær áskilur sér rétt til að prenta myndirnar og hafa til

      sýnis, hvort sem er í húsnæði bæjarins eða annars staðar,

      endurgjaldslaust.

7.   Grundarfjarðarbær áskilur sér rétt til að birta myndirnar endurgjaldslaust.

8.   Skila verður myndum í .jpg formati.

9.   Skila má fleiri en einni mynd en að hámarki fimm myndum frá hverjum

       þátttakanda.

10.  Með því að senda inn mynd/ir í keppnina samþykkir þátttakandi

       reglur hennar.