N.k. laugardag, 25. júlí n.k. kl. 14.00 verða opnaðar nýjar sýningar í Norska húsinu í Stykkishólmi.

„...nema fuglinn fljúgandi“

 

Í Mjólkurstofunni sýnir Ingibjörg Helga Ágústsdóttir útskurð á þjóðlegum nótum.  Ingibjörg  er fædd og uppalin í Stykkishólmi. Hún lærði fatahönnun í London og Kaupmannahöfn en starfar í Stykkishólmi í dag.

 

Ingibjörg hefur tekið þátt í mörgum handverkssýningum en þetta er fyrsta einkasýning hennar, og nefnir hún sýninguna “…nema fuglinn fljúgandi”

Innblástur fyrir þessi verk sem eru unnin í tré er sóttur í þjóðsögur og ævintýri eins og heitið gefur til kynna. Sögur sem eru henni minnistæðar úr æsku sem sögur fyrir svefninn eða jafnvel þjóðsögur úr nágrenninu, en Stykkishólmur og náttúran í kringum hann hafa einnig haft mikil áhrif á gerð verkanna.

 

 

Kreppur og góðæri – gleði og sorgir í Norska húsinu

 

Í Eldhúsinu er Byggðasafn Snæfellinga og Hnappdæla með kynningu á verkefni sem verið hefur í gangi um nokkurt skeið. Söfnun sagna, saga og mynda sem tengjast Norska húsinu á 20. öld.

 

Þessi sýning í Eldhúsinu er lítil kynning á þessu verkefni sem unnið verður næstu árin. Þær myndir, minningar og sögur sem birtar eru, eru á engan hátt tæmandi upplýsingar, hvorki frá viðmælendunum né frá sögulegu sjónarhorni. Heldur er leitast við að þeir sem skoða sýninguna fái hugmynd um Norska húsið og því lífi sem í því var lifað á 20. öldinni.  Við vonumst einnig til að sýningin muni skila safninu fleiri viðmælendum þannig að smá saman fáist fyllri mynd af sögu Norska hússins.

 

 

Norska húsið er opið alla daga frá kl. 11.00-17.00  

Sýningarnar standa fram í  september.