Viðbragðsaðilar við Grundarfjarðarkirkju. Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson
Viðbragðsaðilar við Grundarfjarðarkirkju. Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

 

Alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa

Dagurinn er til að minnast þeirra sem látist hafa í umferðinni, leiða hugann að ábyrgð hvers og eins í umferðinni en ekki hvað síst að þakka þeim viðbragðsaðilum sem veita hjálp og björgun. Að þessu sinni er sérstök áhersla lögð á unga vegfarendur. Hér á landi hefur skapast sú venja að tileinka daginn umfjöllun og forvörnum tiltekins áhættuþáttar í umferðinni eða ákveðnum hópi vegfarenda. Á hverju ári verða alvarleg slys og banaslys þar sem reynsluleysi, hættulegt viðhorf og áhættuhegðun ungra ökumanna koma við sögu. Ungir ökumenn eru hlutfallslega í meiri hættu en aðrir í umferðinni og því er ætlunin nú í ár að beina sjónum sérstaklega að þessum hóp.  

Í Grundarfirði komu viðbragðsaðilar saman við Grundarfjarðarkirkju til að minnast þeirra sem hafa látið lífið í umferðarslysum. 

Rýmingar- og reykköfunaræfing í Fjölbrautarskóla Snæfellinga

Fimmtudaginn 19. nóvember sl. fór fram stór rýmingaræfing, um er að ræða samstarfsverkefni slökkviliðs og FSN. Tilgangurinn var meðal annars að æfa viðbrögð ef að upp kæmu hættulegar aðstæður. Slökkviliðið æfði einnig reykköfun í húsinu og var æfingadúkkunni henni Ruth komið fyrir inn í húsinu og tveir reykkafarar fóru inn og fundu hana. Nánari lýsingu og meiri upplýsingar má sjá hér á heimasíðu Fjölbrautarskólans. Fleiri myndir má sjá á Facebook síðu slökkviliðsins hér.