Friðbjörg Matthíasdóttir viðskiptafræðingur hóf störf þann 1. maí sl. sem framkvæmdastjóri heilsugæslustöðvar Grundarfjarðar í 50% starfi.

Hún er skipuð í starfið af heilbrigðisráðherra, enda heyrir starfið nú undir heilbrigðisráðuneyti eftir að stjórnir heilsugæslustöðva voru lagðar niður 2003.

 

 

Fríða var áður skrifstofustjóri á bæjarskrifstofu Grundarfjarðarbæjar.

Hún hefur vinnuaðstöðu á heilsugæslustöðinni.