Friðrik Vignir Stefánsson leikur á orgel Bavo dómkirkjunnar í Haarlem, Hollandi

Friðrik Vignir Stefánsson, organisti heldur orgeltónleika í Stykkishólmskirkju sunnudaginn 3. október 2004 kl. 17.00. Á efnisskránni er Prelúdía og fúga í C-dúr (BWV 545) eftir J.S. Bach, þrír sálmaforleikir eftir J.S. Bach, Prelúdía og fúga í C-dúr (BWV 547) eftir J.S. Bach, Forspil um sálm sem aldrei var sunginn eftir Jón Nordal, Himna rós, leið og ljós (lag úr Hymnodíu frá 18.öld) eftir Ragnar Björnsson, þrjár prelúdíur op. 2 eftir Árna Björnsson og þættir úr hinni þekktu Gotnesku Svítu eftir Leon Boëllmann.

Friðrik Vignir er fæddur á Akranesi árið 1962. Hann lauk burtfararprófi frá Tónlistarskólanum á Akranesi 1983 og einleikaraprófi í orgelleik frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar 1987. Kennarar hans á orgel voru Haukur Guðlaugsson, Fríða Lárusdóttir og Hörður Áskelsson. Frá árinu 1988 hefur Friðrik Vignir starfað sem organisti og kórstjóri við Grundarfjarðarkirkju, sem og skólastjóri Tónlistarskóla Grundarfjarðar. Hann hefur haldið fjölda einleikstónleika bæði hérlendis og erlendis. Nú síðast hélt Friðrik Vignir orgeltónleika í Katarinakirkju í Stokkhólmi í júlí sl. og tók í sama mánuði þátt í alþjóðlegu masterclass-námskeiði í orgelleik í Haarlem í Hollandi.

 

Tónleikar Friðriks Vignis Stefánssonar verða sem fyrr segir sunnudag 3. október nk. kl. 17 í Stykkishólmskirkju.