Notkun lækningajurta gegn kvefi og flensupestum.

Farið verður yfir hvernig hægt er að styrkja ónæmiskerfið fyrir veturinn með mataræði,vítamínum og jurtum.

Fyrirlesturinn verður í Grunnskólanum í Stykkishólmi 8. Sept. kl. 20:00.

 

Einkaráðgjöf hjá grasalækni.

Viðtal hjá grasalækni tekur um 1 klst. þar sem farið er yfir helstu einkenni og nákvæm sjúkrasaga tekin af viðkomandi til að finna orsök einkenna. Í kjölfarið eru gefnar ráðleggingar um heilbrigðari lífsvenjur s.s. mataræði, vítamín og hreyfingu eftir hverju tilfelli.

Einnig er gefin jurtablanda sem er sérsniðin að sjúkrasögu viðkomandi. Viðtalið kostar 7.500 kr.