Hreyfðu þig daglega. 

Miðvikudaginn 17. febrúar bjóða sveitarfélög úti um allt land frítt í sund sem aukaskammt af G-vítamíni dagsins sem er „hreyfðu þig daglega“. Að fara í sund, taka 100 metrana eða bara láta þreytuna líða úr sér í pottinum er G-vítamín í sinni tærustu mynd! 

Tímarnir hafa breyst. Kyrrseta er orðin algengari en áður en á sama tíma hafa hraði og streita aukist. Þess vegna hefur hreyfing aldrei verið mikilvægari. Ef þú hreyfir þig reglulega, minnkar streita og spenna og lífsgæðin aukast. Leyfðu árstíðunum að hafa áhrif á val þitt. Ekki ætla þér um of og hikaðu ekki við að biðja um leiðbeiningar eða aðstoð. Hreyfðu þig með öðrum eins oft og þú getur. Notaðu tónlist, ef þér finnst hún hvetja þig áfram eða hjálpa þér að slaka á. Finndu þann tíma sem hentar best og mundu eftir mikilvægi öndunar meðan á hreyfingunni stendur. Virtu líkama þinn, ekki festast í að breyta honum með ytri viðmið að leiðarljósi, einblíndu frekar á hið innra. Rannsóknir hafa sýnt að hreyfing vinnur með geðheilsu.

G-vítamínið er byggt á Geðorðunum 10 og 14 Lífsorðum Héðins Unnsteinssonar og
Þórdísar Rúnarsdóttur. Sjá nánar á gvitamin.is

Við hvetjum alla til að nýta sér heitu pottana og köldu sundlaugina, bætir, hressir og kætir! 

Opið virka daga frá 17:00-21:00, laugardaga frá 13:00-17:00, minnum á að panta þarf tíma og virða sóttvarnarreglur.