Finnst þér efnahagsumræðan ruglingsleg? Hagvöxtur, ávöxtur og ávöxtun eru orð yfir merkilega ólík fyrirbæri.

Í þessu stutta námskeiði verða hugtök eins og  hagvöxtur, verg landsframleiðsla, verðbólga, gengi krónunnar og viðskiptajöfnuður útskýrð. Hlutverk banka og seðlabanka verða rædd.

Láttu sjá þig og þú munt detta mun sjaldnar út yfir kvöldfréttunum.

Akranesi miðvikudaginn 20. Jan. kl. 17:00 til 19:00

Grundarfirði föstudaginn 22. Jan. kl. 17:00 til 19:00 í FSN

Kennari: Vífill Karlsson lektor

Munið að skrá ykkur.

 

Skráning í síma 437-2390 eða  skraning@skraning.is

Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi