Góð mæting hefur verið í vetur í frjálsar íþróttir og krakkarnir staðið sig vel á æfingum.  Þegar krakkarnir hafa verið að taka fyrir tilteknar greinar þá hefur verið endað á því að mæla árangur og hafa þær tölur verið hengdar upp á töflu frammi.  Gaman hefur verið að fylgjast með frá því í haust til dagsins í dag hvað krakkarnir eru að bæta sig, og í lok vetrar mun listin verða settur á netið.

 

Krakkar á frjálsíþróttaæfingu

 

Frjálsíþróttaráð HSH er búið að funda um mótamál og þar sem ekkert varð af héraðsmóti innanhúss, var ákv að hafa hraðmót fyrir 10 ára og yngri og 11 – 18 ára í fyrstu vikunni í maí.  Annað mótið verður í Ólafvík og hitt í Stykkishólmi.  Á hraðmótum er einungis keppt í 4 greinum.  Einnig er búið að setja niður mótin í sumar og verða þau í enda júní.  Einnig á að hafa samæfingu fyrir kakka í HSH vikuna fyrir mótin hér í Grundarfirði.

Á síðasta ári var sett af stað Vesturlandssamstarf HSH, UMSB og UDN í frjálsum og voru haldnar samæfingar í Borgarnesi og einnig farið að Laugum í Sælingsdal í æfingabúðir.  Núna er verið að stefna á æfingabúðir að Laugavatni um miðjan maí sem vonandi verður af.  Þessi hópur er ætlaður fyrir unglingalandsmótsaldur 11 – 16 ára en 17 – 18 ára eru yfirleitt farin að æfa mun stífar og sérhæfðara en þau sem yngri eru.  Til að komast í æfingabúðirnar þarf að vera með góða mætingu á æfingar og helst að ætla sér á landsmót.