Grundarfjarðarbær óskar eftir fulltrúum til tilnefningar í ungmennaráð.  

Í ungmennaráði eiga sæti fimm fulltrúar á aldrinum 15-21 árs, sem íþrótta- og æskulýðsnefnd tilnefnir og bæjarstjórn staðfestir skv. ákvæðum sveitarstjórnarlaga, og samþykktar um stjórn Grundarfjarðarbæjar.

Nefndarmenn fá greidda þóknun fyrir fundarsetu með sama hætti og fulltrúar í öðrum nefndum Grundarfjarðarbæjar.

Áhugasamir gefa haft samband við menningar- og markaðsfulltrúa í síma 895-7110 eða sent póst á alda@grundarfjordur.is

Hlutverk ráðsins er:

 

Að koma tillögum og skoðunum ungs fólks til skila til viðeigandi aðila í stjórnkerfi sveitarfélagsins.

 

Að vera bæjaryfirvöldum til ráðgjafar varðandi aðstöðusköpun og afþreyingarmöguleika.

 

Að þjálfa ungt fólk í lýðræðislegum vinnubrögðum og auka tengsl þess við stjórnkerfi sveitarfélagsins.

 

Ungmennaráð starfar með og undir leiðsögn íþrótta- og æskulýðsnefndar.