Boðað er til fundar um ýmis málefni er varða skipulag og umhirðu kirkjugarða og samvinnu sóknarnefnda/kirkjugarðsstjórna og sveitarfélaga. Vænst er fulltrúa allra kirkjugarða á Snæfellsnesi, fulltrúa sveitarfélaga og presta í prófastsdæminu.

Gestir fundarins eru Guðmundur Rafn Sigurðsson framkvæmdastjóri Kirkjugarðaráðs og Smári Sigurðsson formaður Kirkjugarðasambandsins. Fundarstjóri er Kristín Þorleifsdóttir. Á fundinum verður m.a. farið yfir eftirfarandi þætti:

Almennt um kirkjugarða
Kirkjugarðar eru sjálfseignarstofnanir og lúta stjórn fulltrúa trú- eða lífsskoðunarfélaga með yfirumsjón Kirkjugarðaráðs. Um kirkjugarða gilda lög um „kirkjugarða greftrun og líkbrennslu“ þar sem m.a. koma fram réttindi og skyldur sveitarfélaga við
kirkjugarða.

Tekjur og gjöld kirkjugarða
Hvernig er rekstur kirkjugarða fjármagnaður og fyrir hvað er verið að greiða? Ábyrgð og hlutverk kirkjugarðsstjórna? Rafræn skil ársreikninga og sameining á rekstri kirkjugarða, hver á að standa straum af kostnaði við rekstur eða framkvæmdir?

Hvert er hlutverk Kirkjugarðasjóðs
Farið yfir hlutverk sjóðsins og hvernig er hægt að sækja um styrk í hann og hvaða skilyrði umsókn verði að uppfylla. Sýnd dæmi um framkvæmdir við kirkjugarða á svæðinu sem sjóðurinn hefur styrkt.

Umhirða og grafartaka
Á hvers ábyrgð og forræði er grafartaka í kirkjugörðum?
Hver á að slá og hirða garðinn og hver á að slá - eða moka snjó?
Hvernig og hvenær á að „ganga frá nýrri gröf“ ?
Hver á að sjá um legsteininn, blómin eða „fallin leiði“ ?

Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 7. júní 2023 kl. 17:00 í félagsheimilinu Breiðabliki í Eyja- og Miklaholtshreppi.

Öll áhugasöm um málefni kirkjugarða eru hjartanlega velkomin

Að fundinum standa umhverfis- og skipulagssvið Sveitarfélagsins Stykkishólms, Grundarfjarðarbæjar og Eyja- og Miklaholtshrepps, Prófasturinn á Snæfellsnesi, Kirkjugarðaráð og Kirkjugarðasambandið og Svæðisgarðurinn Snæfellsnes.