Það var glæsilegur hópur verðandi skólabarna sem útskrifaðist frá leikskóladeildinni Eldhömrum sl. þriðjudag, 14. júní. Börnin gerðu útskriftarhatta fyrir daginn og fengu góðar gjafir í tilefni af útskriftinni.

Foreldrafélag leikskólans gaf merkta íþróttapoka, handklæði og vatnsbrúsa og Grunnskólinn gaf börnunum reynitré. Að auki fengu útskriftarnemarnir möppur með myndum úr starfinu á Eldhömrum.

Það var auðvitað slegið upp fínustu grillveislu fyrir útskriftarnemana, foreldra þeirra og starfsfólk og boðið upp á pylsur, djús, kaffi og tertu.