GARÐSLÁTTUR SUMARIÐ 2021

Líkt og undanfarin ár býður Grundarfjarðarbær fólki 67 ára og eldri og þeim sem búa við örorku niðurgreidda þjónustu við garðslátt í sumar.

Sækja þarf um garðslátt með því að senda tölvupóst á grundarfjordur@grundarfjordur.is eða hringja í síma 430-8500 á opnunartíma skrifstofu kl. 10:00-14:00 virka daga.

Umsóknarfrestur er til og með 14. júní 2021.

Ekki verður tekið við umsóknum eftir þann tíma.

Gjaldskrá og reglur fyrir garðslátt má nálgast hér.