Í dag verður hátíðin "Rökkurdagar 2009" sett í Sögumiðstöðinni í Grundarfirði.  Hátíðin hefur verið árlegur viðburður á haustdögum frá árinu 2004 og er þetta því í sjötta sinn sem hún er haldin.  Það fer vel á því að hafa hátíðina um veturnætur þegar húmið sígur að.  Þessar hátíðir hafa alltaf verið helgaðar menningartengdu efni og hafa margvíslegir menningarstraumar fengið að njóta sín í ræðu, riti, tónlist og myndlist.  Dagskrá hátíðarinnar einstaklega glæsileg og vill undirritaður með þessum pistli hvetja Grundfirðinga og gesti til þess að fjölmenna á þau atriði sem fram fara.  Góða skemmtun.

Guðmundur Ingi Gunnlaugsson, bæjarstjóri.