Glæsileg kvikmyndahátið er framundan og nóg um að vera.

Extreme Chill tónleikar og rafstuð á föstudeginum og ball með Möggu Stínu og Hringjum á laugardeginum á Kaffi 59.

Teiknimyndir fyrir börnin og pakkfull dagskrá  alþjóðlegra stuttmynda í Samkomuhúsinu auk fyrirlesturs frá heiðursgesti hátíðarinnar Isabelle Razavet.

Fiskisúpukeppnin verður með nýju sniði í ár en nú verður keppt í fiskiréttum, ekki bara súpum.
Sigurliðið fær gjafabréf á Grillmarkaðinn í verðlaun.
Skráning er hafin á info@northernwavefestival.com.

Kinosmiðjan blæs til Super-8 stuttmyndasamkeppni föstudaginn 2.mars 2012 í tengslum við kvikmyndahátíðina.
Afraksturinn verður sýndur á hátíðinni sunnudaginn 4.mars og munu áhorfendur greiða atkvæði um vinningsmyndina og veitt verða verðlaun.
Skráning er hafin á info@kinosmidja.is

Frekari upplýsingar á www.northernwavefestival.com