Íþróttaárið í Grundarfirði byrjar vel.

3.fl karla er kominn í úrslit íslandsmótsins í knattspyrnu innanhúss. Strákarnir unnu þrjá leiki og gerðu eitt jafntefli. Þeir unnu lið Fjölnis, Grindavíkur og BÍ/Bolungavíkur en gerðu jafntefli við ÍR. Strákarnir spiluðu vel og sýndu mikinn baráttuhug í síðasta leiknum en hann urðu þeir að vinna til þess að vera öruggir áfram. Riðlakeppnin fór fram í Íþróttamiðstöðinni í Grafarvogi. Við óskum þeim til hamingju með árangurinn.