Það er orðinn fastur liður að fulltrúar frá sjómannadagsráði mæti í Leikskólann Sólvelli og hiti upp fyrir helgina.  Í morgun í góðu  veðri mættu Gummi og Steinar. 

Þeir komu með harðfisk fyrir alla, fiska til að skoða og fóru í reipitog við nemendur. Bestu þakkir og kveðjur til allra sjómanna frá Leikskólanum Sólvöllum.