Nú eru æfingarnar hjá okkur byrjaðar á fullu og er góð mæting í allar greinar. Í gær voru fyrstu æfingarnar í krakkablaki og var mjög góð mæting þar og er hægt að segja að við höfum nánast sprengt utan af okkur íþróttahúsið en 32 börn mætti í yngri hópnum og 31 í eldri hópnum.

Í dag er verið að smíða girðingu utan um sparkvöllinn og vill UMFG hvetja þá sem hafa einhver tíma aflögu í dag til að mæta þarna uppeftir og aðstoða við verkið.