Góðverkadagar verða haldnir um land allt dagana 22. til 26. febrúar. Fjöldi fyrirtækja, framhaldsskóla, grunnskóla og leikskóla mun taka þátt í Góðverkadögunum í ár. Markmið Góðverkadaga er að hvetja landsmenn til athafna og umhugsunar um að láta gott af sér leiða, sýna náungakærleik, vináttu, hjálpa öðrum og gera góðverk.

Allir krakkar í skátastarfi kirkjunnar í Grundarfirði munu taka þátt í þessu átaki næstu viku.

Hér má sjá heimasíðu Góðverkadaga.