Þór Geirsson varð um síðustu helgi fyrsti Íslandsmeistari Golfklúbbsins Vestars í Grundarfirði, þegar hann sigraði á landsmóti eldri kylfinga í flokki 55-69 ára með forgjöf. Þór lék á 224 höggum en 89 kylfingar luku keppni í þessum flokki. Mótið fór fram á Odfellowvellinum í Garðabæ. Þór vildi í samtali við Skessuhorn lítið gera úr þessu afreki sínu og lagði ríka áherslu á að hann hefði keppt í flokki með forgjöf. Hann hefur stundað golf í níu ár og er eins og fyrr segir fyrsti Íslandsmeistari GVG. „Nú verða strákarnir bara að herða sig og bæta titlum í safnið,“ sagði hann í samtali við Skessuhorn.

Þessi grein er tekin af www.skessuhorn.is

Þór segir mikið og gott starf vera unnið í golfmálum í Grundarfirði. „Klúbburinn hér er sífellt á uppleið og svo höfum við verið í góðu samstarfi við golfara í Hólminum og höldum reglulega mót með þeim.“ Þór starfar sem sjómaður og segist grípa í golfið þegar hann er í landi. Hann varð nýverið gjaldgengur í 55+ flokkinn og segist alls ekki hættur að keppa, hann muni halda áfram á meðan skrokkurinn leyfir.