Göngur og réttir 2021

Nú þegar líður á haustið er kominn tími á göngur og réttir hjá sauðfjárbændum landsins. Í Grundarfirði verður réttað laugardaginn 18. september. Það verður réttað á Hrafnkelstöðum og Mýrum.

 

Grundarfjarðarbær hvetur þáttakendur til að gæta vel að smitvörnum og hlaða niður smitrakningarappi almannavarna.