Mynd: Ólafur Ólafsson
Mynd: Ólafur Ólafsson

Langar þig á gönguskíði í einstöku umhverfi?

Í samvinnu Golfklúbbsins Vestarrs, GVG, og Grundarfjarðarbæjar, með aðstoð Björgunarsveitarinnar Klakks er búið að ryðja gönguskíðabraut (spor) í einstöku umhverfi Bárarvallar. Þess má geta að í gær, 5. janúar 2023, afhenti Stjórn Skíðasvæðis Snæfellinga Golfklúbbnum að gjöf skíðabrautatækið, þ.e. áhaldið sem notað er til að útbúa gönguskíðasporið. Sjá nánar í frétt hjá GVG og Skíðasvæðinu.

Tvær leiðir voru lagðar á völlinn, önnur leiðin er 1,5 km löng fyrir lengra komna og hin er 0,5 km löng og léttari. Það voru þeir Mateusz Moniuszko, Símon Grétar Rúnarsson og Elías Dór Símonarson, sérlegur aðstoðamaður frá Björgunarsveitinni Klakki sem lögðu sporin. Sporin liggja um fjölbreytt en þægilegt landslag vallarins, með Kirkjufellið og fjörðinn í forgrunni. Búið er að ryðja bílastæðið við golfvöllinn svo að aðkoman að svæðinu sé góð. 

Við skorum á ykkur að prófa og segja okkur hvernig gekk! Það má senda myndir á grundarfjordur@grundarfjordur.is