Götusópari mun sópa götur hér í Grundarfirði næstu daga. Hann byrjar um helgina og tekur hreinsunin um þrjá daga. Fólk er hvatt til að fylgjast með og hliðra til fyrir götusópnum og færa bifreiðar sínar eftir því sem kostur er.

Vinnum saman að því að gera bæinn enn snyrtilegri en hann þegar er!