Síðustu daga hefur verið unnið að því að hreinsa gangstéttar þar sem tæki komast að og er nú komið að því að fá götusóp.

Þó frekar vetrarlegt sé um að litast á þessari stundu eru íbúar hvattir til þess að sópa gangstéttar fyrir utan heimili sín svo sem kostur er því gert er ráð fyrir að götusópun hefjist á sunnudag ef veður leyfir.

Æskilegt er að bílar séu færðir á meðan götusópur fer yfir en erfittt er að segja til um hvenær hver gata verður hreinsuð. Bíleigendur eru beðnir að hafa augu og eyru opin og færa bíla sína þegar götusópur nálgast.