Eins og fram kom hér á vefnum fyrir nokkru síðan var búið að panta götusóp til að hreinsa götur bæjarins. Ekki vildi betur til en svo að um leið og búið var að auglýsa komu göusópsins byrjaði að snjóa og ekkert varð af hreinsun í það skipti. Þar með var ekki öll sagan sögð því í kjölfarið bilaði bíllinn sem átti að nýta í verkið.

Nú lítur út fyrir að viðgerð á bílnum sé að ljúka og verða götur hreinsaðar næstu daga. Nánari upplýsingar um tímasetningu verða settar hér á vefinn þegar þær liggja fyrir.