Grænn apríl er verkefni sem hópur áhugafólks um umhverfismál hrinti í framkvæmd. Markmiðið er að fá ríkisstjórnina, sveitarfélög, fyrirtæki, félagasamtök og einstaklinga til að kynna vöru, þekkingu og þjónustu sem er græn og umhverfisvæn og styður við sjálfbæra framtíð á Íslandi.

Grundarfjörður er þátttakandi  í grænum apríl og á vefsíðu verkefnisins má finna viðtal við forseta bæjarstjórnar.

 

Tilgangur verkefnisins er að vinna að því að gera aprílmánuð að grænum mánuði á Íslandi þar sem lögð er áhersla á að kynna og bjóða upp á upplýsingar um þekkingu, vöru og þjónustu sem telst vera græn og umhverfisvæn.

  • Að vekja landsmenn til frekari vitundar um að við þurfum að gæta að náttúrunni og umhverfi okkar.
  • Að hvetja aðila sem selja þekkingu, vöru eða þjónustu sem er annað hvort umhverfisvottuð, af Fair Trade uppruna eða telst umhverfisvæn á einn eða annan máta, til að kynna sig og starf sitt sérstaklega í apríl.
  • Að hvetja til umræðu um mikilvæg skref sem taka verður til að vernda náttúru landsins svo að komandi kynslóðir fái notið hennar á sama hátt og við njótum hennar í dag.