- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Gróðurgámur
Búið er að setja upp gróðurgám við Ártún 8, sem er við hliðina á Gámastöðinni í Ártúni 6 og er stefnt að því að þetta sé framtíðarstaðsetning hans. Til þæginda hefur nú verið útbúinn rampur sem hægt er að aka upp, en þó er rétt að geta þess að enn á eftir að lagfæra lítillega þessa aðkomu, þannig að fyrir stærri bíla getur fyrst um sinn verið þröngt að keyra upp rampinn með kerru aftan í.
Við Ártún 8 verður síðan á næstunni tekið í notkun nýtt geymslusvæði bæjarins. Framkvæmdir við það hafa staðið yfir síðustu vikur og stutt er í að það verði fullfrágengið. Meðal annars er gert ráð fyrir að svæðið í heild sinni, þar með talinn gróðurgámurinn, verði vaktað með öryggismyndavélum. Samhliða þessum breytingum verður gamla geymslusvæðinu, við Hjallatún 1, lokað, enda hefur þeirri lóð verið úthlutað fyrir byggingu iðnaðarhúss.
Búið er að samþykkja drög að reglum og gjaldskrá fyrir geymslusvæðið, og samhliða því er verið að huga að breytingum á reglum bæjarins um stöðuleyfi á atvinnulóðum.
Gróðurgámurinn er staðsettur þar sem rauða x-ið er á myndinni hér fyrir neðan: