Tilefni þessa viðburðar er að um þessar mundir verða liðin 35 ár frá því Vigdís Finnbogadóttir var kjörin forseti Íslands, fyrst kvenna til að verða þjóðkjörin forseti, og 100 ár eru frá því að konur hér á landi fengu kosningarétt. Af þessu tilefni hafa á fjórða tug félagasamtaka og stofnana, þar á meðal Skógræktarfélag Íslands, tekið höndum saman og efna til hátíðardagskrár um þessa helgi.

 

Skógrækt, landgræðsla og náttúruvernd hafa verið Vigdísi afar hugleikin og hefur hún haldið þeim málefnum á lofti á opinberum vettvangi. Eitt besta dæmið þar að lútandi er að snemma í forsetatíð sinni tók hún upp þann sið að gróðursetja þrjú tré á þeim stöðum sem hún heimsótti – eitt fyrir stúlkur, eitt fyrir drengi og eitt fyrir komandi kynslóðir. Þótti því upplagt að skógræktarfélögin myndu marka þessi tímamót með gróðursetningu og fylgja fordæmi Vigdísar um trén þrjú. Skógræktarfélögin, ásamt sveitarfélögum um land allt, munu því standa saman að gróðursetningu laugardaginn 27. júní, í tengslum við þessi tímamót.

 

Grundfirðingar sem aðrir eru hvattir til þess að fjölmenna og taka þátt í þessari táknrænu gróðursetningu  trjáa í Yrkjuhvamminn við Vatnstankinn kl. 14.00 laugardaginn 27. júní nk.

 

Njótum stundarinnar!