Gróðurbeðin á Leikskólanum Sólvöllum
Gróðurbeðin á Leikskólanum Sólvöllum

Gróðursetningargleði á lóð Leikskólans Sólvalla

Á degi íslenskrar náttúrur, þann 16. september næstkomandi, ætla Grundarfjarðarbær, Grunnskóli Grundarfjarðar og Leikskólinn Sólvellir að taka höndum saman og útbúa nýtt, glæsilegt 50 metra gróðurbeð með fjölæringum og runnum á lóð Leikskólans Sólvalla.

Öllum íbúum, stórum sem smáum, er boðið að taka þátt, aðstoða leikskólabörnin að gróðursetja og eiga skemmtilega samverustund. 

Gróðursetningin hefst kl. 10:00 á lóð leikskólans Sólvalla.

Hvernig getur þú tekið þátt?

1. Gefðu afleggjara: Átt þú fjölæringa eða runna í garðinum þínum sem má skipta eða taka afleggjara af?

2. Plöntusöfnun: Grunnskólabörn, með aðstoð fagaðila, munu fara um bæinn í september, sækja plönturnar sem íbúar bjóða fram og koma þeim á leikskólalóðina.

3. Mættu á svæðið: Komdu með garðhanskana, góða skapið og hjálpaðu okkur að gróðursetja!

Að gróðursetningu lokinni verður boðið upp á skemmtilega leiki og grill fyrir alla þátttakendur!

Viðburðurinn á Facebook
Dagskrá Gróðursetningargleði
Óskalisti - Plöntur og afleggjarar