Gróðurvika í Grundarfirði

Nýverið var haldin ansi lífleg og lærdómsrík Gróðurvika í Grundarfirði þar sem börn á öllum skólastigum, starfsfólk og bæjarbúar tóku höndum saman í fjölbreyttum fræðslu- og gróðursetningarverkefnum. Sérstakur gestur vikunnar var Guðríður Helgadóttir (Gurrý), garðyrkjufræðingur, sem kom í heimsókn og fræddi bæði skólabörn og almenning.

Þriðjudaginn 15. september var dagskráin þétt skipuð og leik- og grunnskólabörn Grundarfjarðar fengu að kynnast leyndardómum plönturíkisins:

  • Leikskólastig: Börnin á Drekadeild fóru í laukaleik þar sem þau lærðu hvað haustlaukur er, hvernig hann sefur yfir veturinn og vaknar svo af værum blundi á vorin. Í kjölfarið voru settir niður krókusar, vetrargosar og páskaliljur á leikskólalóðinni, og verður spennandi að fylgjast með blómstrun á næsta vori.

  • 1.–6. bekkur: Nemendur prófuðu græðlingatöku af skrautrunnum. Birkikvistir, Meyjarósir og fl. voru settar í gróðurbakka og munu svo ræta sig í gróðurhúsinu uppi í grunnskóla í vetur. Áætlað er að gróðursetja svo þessa runna á næsta gróðursetningardegi 2027.

  • 7.–10. bekkur: Nemendur lærðu um fjölgun trjáplantna og ýmsar gerðir af fræjum. Farið var í gönguferð upp í skógrækt þar sem börnin söfnuðu fræjum, berjum og könglum af ýmsum trjám.

Um kvöldið 15. september mættu garð- og náttúruunnendur víðsvegar af Snæfellsnesi saman í Samkomuhúsið þar sem Gurrý hélt skemmtilegan og hagnýtan fyrirlestur. Hún fór yfir uppbyggingu beða, val á fjölæringum og laukplöntum til að lágmarka viðhald, ásamt kostum og göllum þess að reka „viljandi villt“ blómaengisbeð. Einnig fengu fundargestir frábær ráð um helstu haustverkefnin í garðinum til að vinna sér í haginn fyrir næsta vor.

Gróðursetningargleði á leikskólalóð

Á sjálfann Dag íslenskrar náttúru, miðvikudaginn 16. september, lék veðrið ekki alveg við Grundfirðinga eins og stundum vill verða. En það stöðvaði heimamenn ekki, gróðursetningunni var einfaldlega frestað fram á fimmtudaginn 17. september þegar veðurguðirnir voru orðnir hressari.

Á fimmtudaginn var farið í gróðursetningu þar sem tvö glæsileg gróðurbeð voru fyllt af fjölæringum, runnum og haustlaukum. Íbúar og fyrirtæki höfðu gefið meira en nóg af plöntum til gróðursetningar og varð því afgangur sem verður gróðursettur annarsstaðar í þéttbýlinu. Einstaklega ánægjulegt var að sjá öll skólastig sveitafélagsins mætt til þess að aðstoða leikskólabörnin við að koma plöntunum vel fyrir í moldinni og má þar nefna sérstaklega fjölda nemenda úr Fjölbrautaskóla Snæfellinga sem komu að aðstoða börnin.

Grundarfjarðarbær færir öllum þeim sem tóku þátt, gáfu plöntur eða lögðu verkefninu lið, sína bestu þakkir. Það er dásamlegt að sjá hvað gerist þegar allar kynslóðir sameinast um að fegra bæinn okkar og efla líffræðilegan fjölbreytileika. Sérstakar þakkir fær Gróðrastöðin Þöll sem gaf okkur ótrúlegt úrval af fallegum plöntum.

Hér að neðan má sjá myndaalbúm frá báðum dögum: