Aðlögun sveitarfélaga að áhrifum loftslagsbreytinga. 

 

Málþingið "Aðlögun sveitarfélaga að áhrifum loftslagsbreytinga" verður haldið í Hofi Akureyri fimmtudaginn 12. febrúar nk. 

Málþingið er lokahnykkur í aðgerð C.10 í byggðaáætlun, Áhrif loftslagsbreytinga og sveitarfélög, sem Byggðastofnun hefur leitt í samstarfi við Veðurstofu Íslands, Skipulagsstofnun og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið. Þar verður m.a. kynnt fyrsta útgáfa leiðarvísis fyrir sveitarfélög um mótun aðlögunaraðgerða sem byggður er á tilraunaverkefnum í fimm sveitarfélögum, auk nýrrar aðlögunaráætlunar Íslands, Loftslagsatlas Íslands og fleiri verkfæra og leiðbeininga sem styðja sveitarfélög í aðlögunarvinnu.

 Nanna Vilborg Harðardóttir verkefnisstjóri skipulags- og umhverfismála hjá Grundarfjarðarbæ verður með erindið "Blágrænn Grundarfjörður" og hefst það kl. 15:10. Í kjölfarið verður Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri Grundarfjarðarbæjar í pallborðsumræðum og hefjast þær kl. 15:30.

Viðburðurinn verður í beinni útsendingu í Bæringsstofu frá kl. 15:00 og eru áhugasamir hvattir til þess að kíkja við. Kaffi og með því í boði.

Frekari upplýsingar um viðburðinn er hægt að finna á heimasíðu Byggðastofnunar og hér er viðburðurinn á Facebook.