- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Frábær árangur og dýrmæt reynsla af Nordic-Baltic LIFE ráðstefnunni í Eistlandi
Nýlega lauk Nordic-Baltic LIFE Platform Meeting 2026 sem haldin var í Vihula í Eistlandi. Ráðstefnan er árlegur vettvangur LIFE-verkefna á Norðurlöndum og Eystrasaltslöndunum þar sem sérfræðingar, sveitarfélög og stofnanir koma saman til að deila reynslu af náttúruvernd, endurheimt og sjálfbærum lausnum.
Fulltrúi Grundarfjarðar á ráðstefnunni var Nanna Vilborg Harðardóttir, verkefnastjóri skipulags-, umhverfismála og LIFE-Icewater. Ráðstefnan heppnaðist ótrúlega vel og skilaði víðtæku tengslaneti ásamt mikilli og gagnlegri þekkingu sem kemur til með að nýtast vel í áframhaldandi þróun umhverfis- og ofanvatnsmála í okkar samfélagi.
Fulltrúi Íslands í líflegum pallborðsumræðum
Þrjú LIFE verkefni eru í gangi á Íslandi þessa dagana en það eru auk LIFE-Icewater, Peatland LIFEline og Terraforming LIFE. Mikið var um dýrmæta fræðslu, vinnustofur og vettvangsferðir þar sem fjallað var um nýjustu aðferðir í náttúrumiðuðum lausnum (Nature-based Solutions), vatnsstjórnun og samfélagsþátttöku.
Einn af hápunktum dagskrárinnar var sérstök pallborðsumræða undir yfirskriftinni „Nature conservation, democracy and everyday life: learning from LIFE“. Þar var Nanna Vilborg í pallborði fyrir hönd Íslands ásamt sérfræðingum frá Danmörku, Finnlandi, Litháen og Eistlandi.
Umræðurnar snerust meðal annars um mikilvægi þess að virkja íbúa og landeigendur snemma í ferlinu, gagnsæi í ákvarðanatöku og hvernig náttúruverndarverkefni ná best árangri til lengri tíma ef þau eru unnin í samstarfi og sátt við nærsamfélagið. Innlegg Íslands og reynsla okkar úr LIFE-Icewater verkefninu í Grundarfirði vakti mikla athygli og fékk frábærar viðtökur og mikið hrós meðal ráðstefnugesta.
Öflugt tengslanet og lærdómur heim í hérað
Auk þátttöku í pallborðinu gaf ráðstefnan dýrmætt tækifæri til að efla tengsl við önnur evrópsk LIFE-verkefni og sérfræðinga sem vinna að svipuðum áskorunum. Sú þekking og þau tengsl sem byggð voru upp í Eistlandi munu styrkja enn frekar starf okkar hér í Grundarfirði þegar kemur að innleiðingu á blágrænum ofanvatnslausnum, verndun vatnsgæða og sjálfbærri samfélagsþróun.
Við þökkum fyrir frábæra ráðstefnu og hlökkum til að nýta þennan lærdóm í þágu Grundarfjarðar!