Mikill áhugi á blágrænum ofanvatnslausnum Grundarfjarðarbæjar á Skipulagsdeginum

Grundarfjarðarbær átti fulltrúa á Skipulagsdeginum 2026, þar sem Nanna Vilborg Harðardóttir, verkefnisstjóri skipulags- og umhverfismála hjá bænum, flutti erindi um þá metnaðarfullu vinnu sem nú stendur yfir við innleiðingu blágrænna ofanvatnslausna í Grundarfirði.

Í erindinu var fjallað um hvernig Grundarfjarðarbær vinnur markvisst að innleiðingu blágrænna innviða í þéttbýlinu og hvernig sú vinna tengir saman fráveitumál, skipulagsmál, loftslagsaðlögun og þróun almenningsrýma. Vinnan er meðal annars hluti af LIFE-Vatnalíf verkefninu og hefur sveitarfélagið lokið við sérstakan rammahluta Aðalskipulags Grundarfjarðar 2019–2039 fyrir blágrænar ofanvatnslausnir og almenningsrými. Markmiðið er að skapa heildstæða umgjörð um meðferð ofanvatns og tryggja markvissa uppbyggingu blágrænna innviða samhliða þróun almenningsrýma bæjarins.

Upphaf þessarar vegferðar má rekja til ársins 2019, þegar pólitísk samstaða myndaðist um að takast á við fráveituvanda bæjarins með nýrri nálgun og innleiða blágrænar ofanvatnslausnir markvisst í þéttbýlinu. Sú framtíðarsýn rataði inn í aðalskipulag bæjarins með skýrri stefnu um að„blágrænar ofanvatnslausnir verði innleiddar í þéttbýlinu“. Síðan þá hefur verið unnið markvisst að því að færa þessa sýn úr stefnumótun yfir í skipulag, hönnun og framkvæmdir.

Grundarfjarðarbær hefur þegar hafið innleiðingu lausnanna í framkvæmdum. Meðal verkefna eru framkvæmdir í Hrannarstíg, þar sem regnbeð eru hluti af endurbótum götunnar, auk áframhaldandi áforma um blágrænar lausnir í Borgarbraut, Sæbóli og Ölkelduvegi. Samhliða er unnið að rannsóknum og mælingum á virkni lausnanna í samstarfi við Háskóla Íslands.

Að loknu erindinu tók Nanna þátt í pallborðsumræðum undir þemanu „Aðlögun byggðar að loftslagsbreytingum“. Þar ræddu frummælendur og aðrir sérfræðingar áskoranir og leiðir sveitarfélaga til að bregðast við áhrifum loftslagsbreytinga.

Í pallborðinu voru Gunnar Páll Eydal, umhverfis- og auðlindafræðingur og skipulagsfræðingur hjá Verkís, Finnur Ricart Andrason, sérfræðingur í umhverfismálum hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Hulda Ragnheiður Árnadóttir, forstjóri Náttúruhamfaratryggingar Íslands, Elín Þórólfsdóttir, teymisstjóri starfsumhverfis mannvirkjagerðar hjá HMS ásamt Nönnu hjá Grundarfjarðarbæ. Umræðunum stýrði Bergsteinn Sigurðsson fjölmiðlamaður.

Í pallborðinu gafst meðal annars tækifæri til að setja reynslu Grundarfjarðarbæjar af innleiðingu blágrænna ofanvatnslausna í stærra samhengi og ræða hvernig skipulag, náttúrumiðaðar lausnir og uppbygging innviða geta unnið saman að því að auka seiglu byggðar gagnvart breyttu veðurfari.

Erindið vakti mikla athygli

Erindið fékk afar góðar viðtökur á Skipulagsdeginum og vakti töluverða athygli meðal þátttakenda. Að erindinu loknu bárust fjölmörg jákvæð viðbrögð og fyrirspurnir um verkefnið.

Viðtökurnar eru ánægjuleg viðurkenning á þeirri vinnu sem unnin hefur verið í Grundarfirði undanfarin ár og sýna jafnframt að reynsla minni sveitarfélaga getur átt mikilvægt erindi inn í umræðu um loftslagsaðlögun, skipulag og framtíðaruppbyggingu íslenskra bæja.

Eitt af markmiðum LIFE-Vatnalífs verkefnisins í Grundarfirði er einmitt að miðla þeirri reynslu og þekkingu sem skapast við innleiðingu blágrænna lausna, þannig að hún geti nýst öðrum sveitarfélögum.

 

Upptaka frá Skipulagsdeginum 2026 er aðgengileg á vef Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.

Erindi Grundarfjarðarbæjar hefst á 4:33:20 í upptökunni.

Skipulagsdagurinn 2026 og upptaka frá viðburðinum