Leitað er að einstaklingi sem gengur vaktir og hefur umsjón með daglegum rekstri íþróttahúss og sundlaugar.  Umsjónarmaður er verkstóri á vinnustaðnum, sér um að vaktir séu mannaðar og fylgist með og stýrir umgengni um íþróttahúsið og sundlaugina.  Umsjónarmaður er ábyrgur fyrir því að fyllsta hreinlætis sé ætíð gætt og hefur umsjón með því að heilbrigðis- og öryggiskröfur séu uppfylltar.   Næsti yfirmaður er skrifstofustjóri Grundarfjarðarbæjar, en mikið samráð og samstarf er við skólastjóra Grunnskóla Grundarfjarðar, ráðsmann Grundarfjarðarbæjar og forystu UMFG.

Staðan er fullt stöðugildi og þar af er til að byrja með 25% hlutfall við umsjón og verkstjórn.

 

Umsóknarfrestur er til og með fimmtudagsins 17. apríl n.k.

 

Laun og kjör eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og samflots bæjarstarfsmannafélaga.

 

Nánari starfslýsingu og upplýsingar gefur skrifstofustjóri Grundarfjarðarbæjar í síma 430 8500 eða gegnum póstfangið ragnheidur@grundarfjordur.is.