- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Grundarfjarðarbær hafnaði í þriðja sæti í könnuninni Sveitarfélag ársins 2026. Könnunin snýr að starfsumhverfi, líðan og ánægju starfsfólks sveitarfélaga.
Könnunin Sveitarfélag ársins er á vegum bæjarstarfsmannafélaga innan BSRB og unnin í samstarfi við Gallup. Kjölur er eitt þeirra félaga og tók félagsfólk í Kili sem starfar hjá Grundarfjarðarbæ þátt í könnuninni.
Þetta er í fimmta sinn sem könnunin er framkvæmd. Markmið hennar er að varpa ljósi á starfsumhverfi og stjórnun á vinnustöðum sveitarfélaga, hvetja til umbóta og veita þeim sveitarfélögum viðurkenningu sem standa sig vel í að hlúa að starfsfólki sínu.
Niðurstöður ársins voru kynntar á uppskeruhátíð verkefnisins 15. október. Þar sem fulltrúi Grundarfjarðarbæjar komst ekki á hátíðina kom Þóra Sonja Helgadóttir, fulltrúi Mannauðsseturs og Mannauðssjóðsins Heklu, til Grundarfjarðar og afhenti Birki Jóni Jónssyni og hluta starfsfólks Grundarfjarðarbæjar viðurkenninguna.
Grundarfjarðarbær var meðal fjögurra sveitarfélaga sem hlutu viðurkenningu í ár. Auk Grundarfjarðarbæjar hlutu Hrunamannahreppur, Grímsnes- og Grafningshreppur og Skeiða- og Gnúpverjahreppur viðurkenningar.
Nánar má lesa um könnunina hér einnig er hægt að lesa frétt um viðurkenninguna heimasíðu Mannauðssjóðs Heklu.