Ljósmynd: Tómas Freyr Kristjánsson
Ljósmynd: Tómas Freyr Kristjánsson

Bæjarráð Grundarfjarðarbæjar samþykkti á fundi sínum í dag viljayfirlýsingu milli sveitarfélagsins og JAE ehf. um mögulega uppbyggingu ferðaþjónustu í Grundarfirði, sem felur í sér að hluthafar JAE ehf. muni vinna að stofnun félags um uppbyggingu ferðaþjónustu í Grundarfirði. Viljayfirlýsingin tekur til þróunar og rannsókna á tveimur verkefnum: baðlóni og lúxushóteli ofan þéttbýlis Grundarfjarðar. Unnið verður hratt að rannsóknum og ábatagreiningu verkefnisins og er niðurstöðu þess að vænta fyrir 1. október nk.

Að mati JAE ehf. er viljayfirlýsingin grundvöllur frekari rannsókna á svæðinu og ítarlegrar ábatagreiningar, enda er Grundarfjörður einstaklega vel staðsettur í þessu samhengi og náttúrufegurðin er engu lík.

Birkir Jón Jónsson bæjarstjóri Grundarfjarðarbæjar, fagnar þessum áfanga:

„Við fögnum áhuga öflugra aðila á að vilja byggja upp rekstur og fjárfesta í atvinnulífi og uppbyggingu í Grundarfirði. Gríðarleg tækifæri felast í þessu fyrir samfélag okkar og ljóst að heilmikil atvinnuuppbygging mun eiga sér stað ef af verður.