- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Það verður nóg um að vera í Grundarfirði í nóvember þegar bækur, lestur og samvera fá að njóta sín víða um bæinn.
Leshópurinn Köttur úti í mýri fagnar tíu ára afmæli í ár og hefur af því tilefni sett saman metnaðarfulla dagskrá bókmenntaviðburða fyrir unga sem aldna með það að markmiði að breyta Grundarfirði í bókmenntaborg í heilan mánuð.
Dagskráin hefst fimmtudaginn 5. nóvember þegr yngstu grunnskólabörnunum verður boðið á skólabókasafnið í Lestu fyrir Legó. Þar sem hundurinn Legó verður í aðalhlutverki og fær börnin til að lesa fyrir sig.
Það er þó aðeins byrjunin. Fram undan eru meðal annars vöfflur og vandræðabækur í afmæliskaffi leshópsins, náttfatalestur fyrir minnstu börnin, prjón og upplestur við kertaljós, upplestur heima hjá ömmum og öfum og pabbamorgunn á bókasafninu.
Hápunktur mánaðarins verður síðan Jólabókaflóð barnanna í Grundarfirði miðvikudaginn 25. nóvember, þar sem barnabókahöfundar koma í heimsókn og fá börnin fá tækifæri til þess að ræða við þau um bækurnar sínar.